Takk fyrir mig.

Undanfarið hef ég heyrt töluvert í fólki, bæði sem ég þekki og þekki ekki en hafa haft samband við mig eftir viðtalið í vikunni og þáttinn í sumar. Það er sorglegt að allt þetta fólk hefur þurft að takast á við það að eiga barn eða einhvern mjög nákominn sem lent hefur í neyslu fíkniefna en það sem er sorglegra er að þetta fólk hefur allt þurft að berjast við kerfið okkar fyrir því að fá hjálp í þessum málum og sumir hafa gengið í gegnum mörg ár án almennilegra úrræðaAngry 

Þegar ég lít til baka yfir mína sögu með mínum syni fíklinum og alla þá baráttu sem ég hef þurft að heyja á þessum sjö árum þá er alveg merkilegt hversu oft ég hef þurft að beita allri minni orku í að fá í gegn aðstoð.

Mér er minnistætt eitt skiptii þegar hann hafði verið tíndur í hálfan mánuð og ég hafði loks frétt af honum að hann væri í mjög slæmu líkamlegu ástandi þá 16.ára gamall. Ég set mig strax í samband við barnaverndar fulltrúan sem hafði haft hans mál og bið um að hún fari í að græja pláss fyrir hann þar sem hann er illa á sig kominn og það verði að stoppa hann. þau svör voru að allt væri fullt og það yrði bara að fara í biðröðina en ég var ekki alveg til í það og benti henni á að ég þekkti nú barnaverndarlöginn nokkuð vel og myndi ekki hika við að nota þau, þá gat hún reddað því að það biði pláss á neyðarvistun en það væri bara hægt að halda því í sólahring. Svo það fór allt á fullt við að leita af drengnum og að lokum fannst hann og var fluttur inná Stuðla í hræðilegu ástandi, ekkert nema skinn og bein, stóð varla undir sjálfum sér af vannæringu og kolruglaður af neyslu. En barnaverndar fulltrúinn sem á að mæta og kíkja á skjólstæðing sinn á Stuðlum á fyrstu sólahringum hans þar kom ekki fyrr en á 12 degi og þá voru starfsmenn staðarins orðnir ansi hissa á vinnubrögðum hennar. Henni brá nú heldur í brún er hún sá hann þarna á 12.degi og uppúr henni datt í fyrsta sinn: Kristín mín þarft þú ekki einhverja aðstoð..... þarna á þessum tímapunkti var drengurinn farinn að braggast og leit bara nokkuð vel út miða við þegar hann kom inn...Þetta er bara ein lítil saga ég á örugglega efni í heila bók af svona baráttusögum við kerfið.

Ótrúlegt að þurfa ða eyða orku í að berjast við kerfið.... kerfið sem á að huga að velferð þeirra sem búa í samfélaginu,

Allir þeir sem hafa þakkað mér fyrir að koma fram og opna þessa umræðu, segja mína sögu sem er saga svo margra. Ég er afar þakklát. Takk fyrir fögur orð í minn garð.

Þetta er barátta margra og við verðum að standa saman um að krefjast þess að einhvað gerist jákvætt í málefnum fíkla og aðstandenda.

Kv.Kristín


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Flott hjá þér Kristín.

Halla Rut , 20.10.2007 kl. 00:41

2 identicon

Ég er óendanlega stollt af þér, sem betur fer hef ég ekki þurft að berjast svona við kerfið, enda á ég ung börn sem eldast reyndar frekar fljótt

Ég þekki þennan heim heldur ekki sjálf, en ég á vini sem hafa fallið í þennan heim og minn heitt elskaði hefur reynsluna sem nýtist honum sem betur fer til góðs í dag

knús og kram

Elísabet

Elísabet (IP-tala skráð) 20.10.2007 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband