Þessi fallegi dagur.

Fallegur dagur í dag....Yndislegt að heyra fuglasönginn, ég er nefnilega dálítið náttúrubarn í mér. Þykir yndislegt að vera úti í náttúrunni og heyra í henni........geri bara of lítið af því!

Mér er létt í hjarta ég heyrði í ráðgjafanum hans Ragnars og það er verið að vinna í hans málum.... enda vissi ég að hann fengi réttan stuðning í þessu máli... mitt var bara að sleppa tökunum og treysta Smile 

Svo fékk ég dásamlegt símtal frá einum vini mínum sem býr á Skálatúni Smile Hæ fara Rolling stones með mér InLove já ekki spurning um að fara aftur á myndina með þeim manni....svo Rolling stones er það á fimmtudaginn.

Takk fyrir komment full af kærleika, hvatningu og bænum Heart

Eigið fallegar og góðar stundir.

Kærleikskveðja. Kristín

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Æðislegt að heyra, vona svo innilega að hann fái að vera áfram í Götusmiðjunni

kveðja Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 14.4.2008 kl. 21:12

2 identicon

Heil og sæl Stína mína. Er nú farinn að sakna þín soldið..     Þarf að fara að heyra smá "skammir" frá þér.  Gaman að sjá að allt virðist ganga vel. Vona að þér gangi vel í vettvangsnáminu.

 Bestu kveðjur Halli Valli

Halli Valli (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 21:54

3 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Elsku karlinn...Halli minn Valli er engin að argast í þér  Sakna þín líka og vona að þú hafir það bara skemmtilegt í vettvanginum. Við hittumst nú bráðlega...... ráðstefnu útskriftanema og þá get ég ábyggilega gefið þér vænan skammt af Stínu ,,skömmum,,

Kristín Snorradóttir, 14.4.2008 kl. 22:01

4 identicon

Sko

Er ekki Guð góður ?

Hlakka til að sjá þig á morgun.

Er ekki mæting kl 16:00 ?

Elska þig líka

Guðrún

Guðrún Harðardóttir (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 22:25

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 14.4.2008 kl. 23:32

6 identicon

Hæ stína mín, þúsund kossar og risa knús Sjáumst á opnuninni í Foreldrahúsum......

Elísabet Markúsdóttir (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 01:28

7 identicon

Frábært að lesa þetta, hann fær að vera í Götusmiðjunni. Þannig ætla  ég að sjá það fyrir mér.

Knús

Kidda (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 11:04

8 identicon

Kærleikskveðjur, vona að þetta fari allt á besta veg,

Kveðja Sesselja

Sesselja H. Jensdóttir (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 12:41

9 identicon

Sæl Kristín

Ég ætla bara að senda þér hlýjar kveðjur, ég er nú að fara á fyrsta fundinn minn á nýja heimili Foreldrahúss, alltaf gott að sækja styrk og hlýju á fundina. Vona að börnunum okkar gangi vel. bestu kveðjur Gyða.

Gyða (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband