Trausts hringur.

Góð helgi að baki og finn mánudagur hálfnaður eða svo.... fer eiginlega eftir því hvenær maður leggst á koddan og kíkir í draumalandið LoL

Ég og litli kútur höfðum það voðalega notó um helgina. Borðuðum það sem okkur langaði í og lágum yfir tv milli þess sem við spjölluðum.

Heimasætan átti velheppnað ferðalag í Vatnaskóg og kom þreytt en alsæl heim.

Fórum að heimsækja Ragnar í gær og áttum góðar stundir. Ég verð að minnast á það hvað það er gott að koma austur, það er tekið svo vel á móti manni Winkaf öllum á staðnum.

Ein ung dama á staðnum sagði við mig í gær.... heyrðu næst þá kemur hún mamma mín í heimsókn, viltu ekki segja henni frá Foreldrahúsinu Smileþað þótti mér yndislegt. Bæði af því að það er kærleikur í garð mömmu hennar frá henni og af því það er áminning fyrir mig um að halda áfram að vinna í mér. Það er ómetanlegt að finna það meðal unglingana að maður er á góðum stað, því þá fyrst er maður að gefa af sér eitthvað gott.

Ragnar minn leit vel út og var bara í góðum gír. Mér er það svo dýrmætt hvað við erum farinn að geta talað heiðarlega um hlutina. Hann segir mér heiðarlega frá því sem hann hefur verið að gera og hvernig honum líður. Þetta er ekki létt verk fyrir hann að skipta um lífstíl en hann er að vinna vinnuna sína vel. Ég held að það skipti líka rosalega miklu máli að við erum bæði ég og hann í góðu sambandi við ráðgjafan hans.....enda er hún í circul of trust hjá okkur báðum Smile

Skólageðveikin er þokkaleg en einn hængur á mín er ekki alveg í gírnum hvað varðar að skella saman ritgerðum Blushþarf að sparka vel í rassinn á mér þar!

Eigið góðar stundir.

Kærleikskveðja.Kristín


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var búin að vera að kíkja og ath hvort það kæmi nú ekki ný færsla frá þér um heimsókn í gær og notalegheit um helgina.

Gott að heyra að allt gekk eins og það átti að ganga Nema með ritgerðarstífluna. 

Knús

Kidda (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 17:12

2 identicon

*spark*

Þurý (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 21:56

3 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

váá hvað ég skil þig, ég þarf einmitt spark og það FAST!!!   er ekkert að koma mér af stað svo ég hef enga strauma handa þér elskan :-)

kveðja Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 25.2.2008 kl. 23:14

4 identicon

Hhaha.. snilld hér kemur annað "spark"

Varð að taka undir sparkið mér fannst það svo flott

Ég fór austur í dag og upplifði alveg það sama.. það var svakalega vel tekið á móti okkur og það var svo gott yfir öllu.

Hlý kveðja

Díana 

Díana (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 23:16

5 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Guðborg Eyjólfsdóttir, 26.2.2008 kl. 06:44

6 identicon

SPARK

Sjúmst hressar í foreldrahúsum nú á eftir

kv.

Guðrún

Guðrún Harðard (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 17:11

7 identicon

Sjáumst  ekki sjúmst  Hahahahah

Guðrún Harðard (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 17:12

8 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Úff ég er öll blá og marinn!!!!!!!

Hehehehehe... Takk fyrir spörkinn.

Kristín Snorradóttir, 26.2.2008 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband